Samfélag, kvikmyndir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Að nemendur kynnist íslensku samfélagi frá því um 1960 - 2018 eins og það birtist í íslenskum kvikmyndum. Skoði og skilgreini þann menningarheim í ljósi fortíðar og nútíðar. Nemendur horfa á fimm til sjö íslenskar kvikmyndir. Meginmarkmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir þeim samfélagsbreytingum sem átt hafa sér stað á Íslandi undanfarin 60 ár. Að athuga sérstaklega hvernig þessar breytingar hafa áhrif á einstaklinginn í samfélaginu með því að horfa á íslenskar kvikmyndir sem gerast á árunum uppúr 1960 til dagsins í dag. Námið byggir á virkri þátttöku nemenda þar sem þeir vinna verkefni í tengslum við hverja mynd og athuga trúverðugleika kvikmyndalistarinnar sem frásagnarmiðils.
Þekkingarviðmið
- Íslensku samfélagi
- Breytingum á íslensku samfélagi og áhrifa á einstaklinginn
- Íslenskri tungu
Leikniviðmið
- Skoða og skilgreina menninguna sem birtist í kvikmyndunum
- Meta trúverðugleika kvikmyndalistarinnar sem frásagnarmiðils
- Tjá sig á íslensku, bæði munnlega og skriflega
Hæfnisviðmið
- Skilja íslenskt samfélag
- Taka þátt í umræðu um íslenskt samfélag
- Verða öruggari samfélagsþegn
Nánari upplýsingar á námskrá.is