Nærumhverfi, menning og tjáning
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum fara nemendur í stuttar ferðir um nærumhverfi skólans. Nemendur taka þátt í menningar- og íþróttaviburðum. Heimsækja fyrirtæki og skóla á svæðinu. Kynna sér sögu svæðisins og stjórnsýslu. Áhersla er lögð á tjáningu bæði í töluðu, rituðu og myndrænu máli. Nemendur vinna verkefni út frá þessum heimsóknum sem farið er í. Markmiðið er að kynna nemendum nærumhverfi sitt og menningu, taka þátt í umræðum og kunna skil á þeim stöðum sem heimsóttir verða.
Þekkingarviðmið
- menningu nærumhverfisins
- sögu svæðisins sem við á
- venjum og siðum
- umhverfi daglegs lífs
- stjórnsýslu svæðisins
- tækifærum á svæðinu
Leikniviðmið
- ferðast um nærumhverfi sitt, með almenningssamgöngum og fótgandi
- kynna áhugaverða staði fyrir samnemendum sínum
- tjá sig um nærumhverfið á einfaldan hátt skriflega, munnlega og myndrænt
Hæfnisviðmið
- geta ferðast og heimsótt staði í nærumhverfi sínu
- hefja samtal með einföldum setningum á íslensku
- fylgjast með því sem er að gerast í nærsamfélaginu
Nánari upplýsingar á námskrá.is