Algebra, Prósentur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Nemendur hafi hæfnieinkunn D eða C úr grunnskóla.
Talnareikningur: Unnið með talnaskilning og undirstöðuatriði í almennum reikningi.
Prósentureikningur: Unnið með hugtakið prósenta og léttur prósentureikningur æfður.
Einföld algebra og léttar jöfnur: Unnið með stæður og jöfnur.
Þekkingarviðmið
- samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu heilla talna og almennra brota
- talnakerfinu, notkun sviga og röð aðgerða
- námundun
- að prósenta er hluti af hundraði
- einföldum prósentureikningi
- undirstöðuatriðum í algebru og jöfnureikningi.
Leikniviðmið
- reikna í huganum
- reikna dæmi með svigum og nota reglur um röð aðgerða
- beita helstu aðgerðum á heilar tölur og brot
- finna hluta, heild og prósentu.
- hækka og lækka tölu um ákveðna prósentu
- einfalda léttar stæður og leysa léttar jöfnur
- margfalda inn í sviga og taka út fyrir sviga
- einangra bókstaf út úr þriggja bókstafa jöfnu
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar skipulega
- skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu til notkunar í áframhaldandi námi
- takast á við stærðfræðileg verkefni í daglegu lífi með opnum og jákvæðum huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is