ENSK1MR05 - Hægferð, fyrri hluti
Málfræði og ritun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
ENSK1MR05 samsvarar hæfnisþrepi A2 í evrópska tungumálarammanum. Nemendur bæta við þekkingu sína á helstu málfræðiatriðum og beita málfræðireglum við ritun. Nemendur bæta orðaforða og þjálfast í að tjá sig á talaðri ensku á einfaldan máta. Nemandinn kynnist menningu enskumælandi þjóða.
Þekkingarviðmið
- grunnhugtökum í málfræði (t.d. tíðir, orðaflokkar, greinarmerki o.s.frv.)
- grunnatriðum í ritun
- byggingu efnisgreina
- mismunandi menningarheimum
- fjölbreyttari orðaforða
Leikniviðmið
- lesa fjölbreytta texta (smásögur, greinar og lengri texta, s.s. skáldsögur)
- tjá lesskilning í rituðu máli
- tjá sig munnlega um skoðanir sínar sem og ræða málefni líðandi stundar
- hlusta eftir og skilja fjölbreytta texta frá mismunandi menningarheimum
- halda uppi einföldum samræðum
Hæfnisviðmið
- túlka megininnhald lesinna texta
- halda stutta kynningu fyrir samnemendur
- tjá skoðun sína á gagnrýninn hátt
- taka þátt í umræðum um alþekkt eða einföld málefni
- tjá sig á skýran hátt í ræðu og riti með noktun fjölbreyttari orðaforða
- vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
Nánari upplýsingar á námskrá.is