Líffæri, hreyfifræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05 eða fimm einingar í líffræði á öðru þrepi.
Í áfanganum er fjallað um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Einnig verður fjallað um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað verður einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Fjallað eru um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Enn fremur er fjallað um rétta lyftitækni, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.
Þekkingarviðmið
- helstu vöðvum og vöðvahópum mannslíkamans
- hlutverki beinagrindar og hreyfingum helstu liðamóta
- beinum, liðbönd og liðamótum
- grundvallaratriðum hreyfifræðinnar
- góðri líkamstöðu i starfi og réttri lyftitækni
Leikniviðmið
- finna lýsandi æfingar fyrir þjálfun einstakra vöðva og vöðvahópa
- vinna með helstu hreyfilögmálin
- geta notað rétta lyftingatækni og verið meðvitaður um rétta líkamsbeitingu í starfi
Hæfnisviðmið
- geta greint mun á réttri og rangri líkamsstöðu
- geta greint vöðvavinnu í ákveðnum æfingum
- geta notað helstu hreyfilögmál til að skýra út ýmsar hreyfingar í íþróttum
- geta greint hreyfingu helstu vöðva mannslíkamans frá upptöku og festu
Nánari upplýsingar á námskrá.is