Næringarfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: NÆRI1NN05
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á grundvallaratriðum næringarfræðinnar og samspili næringar, heilsu og íþróttaiðkunnar. Fjallað er um næringarþörf mannsins, næringargildi og samsetningu helstu matvara. Farið er í uppbyggingu og samsetningu próteina, fitu og kolvetna. Fjallað eru um vatn, vítamín og steinefni og gerð grein fyrir gildi þessara efna í fæðunni. Unnið er út frá matseðlum, þeir metnir, samdir og reiknað næringargildi út frá töflum. Fjallað eru áhrif matreiðsluaðferða á næringargildi. Skoðuð eru helstu fæðubótarefni sem eru á markaðnum og hugsanleg áhrif þeirra.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi góðrar næringar fyrir íþróttamanninn
- orku- og næringarefnum líkamans
- áhrifum slæmra matarvenja á afkastagetu
- tengslum á milli mataræðis og sjúkdóma
- hvað er fæðubót og hver er þörfin á fæðubótarefnum
- mikilvægi nægrar vatnsdrykkju
Leikniviðmið
- velja fæðu sem hentar fyrir keppni
- velja fæðu sem eykur líkur á betri afköstum
- velja góða og holla fæðu
- lesa innihaldslýsingar á matvælum
- sýna gagnrýna hugsun við val á fæðu og fæðubótarefnum
Hæfnisviðmið
- útbúa hollan og góðan matseðill fyrir sjálfan sig
- velja sér næringarríkarfæðutegundir
- auka andlega og líkamlega vellíðan með réttu fæðuvali
- geta greint mun á góðu og slæmu mataræði
Nánari upplýsingar á námskrá.is