Framhald
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: TÖTÆ1GR05
Framhaldsáfangi í vélbúnaði, stýri og netkerfum. Megináherslan á vélbúnað, stýrikerfi og jaðartæki. Nemendur setja saman tölvu og setja upp stýrikerfi, uppfæra BIOS, rekla og stýrikerfi. Farið er í hlutverk og samskipti mismunandi íhluta tölvunnar s.s. örgjöva, minnis o.fl. Fínstílling á vélbúnaði og stýrikerfi. Samskipti við viðskiptavini, þjónustuborð. Tenging og uppsetning á jaðartækjum. Hvernig farga á tölvubúnaði. Farið er yfir helstu netöryggismál og helstu hættur skoðaðar í þeim efnum. Farið í netkerfi og helstu útfærslur á þeim.
Þekkingarviðmið
- virkni á undirstöðueiningum s.s. örgjörva, rásasetta o.s.frv
- mismunandi jaðartækjum sem tengjast við tölvur
- áhrif stöðurafmagns og spennutruflana á tölvuíhluti og varnir gegn þeim
- helstu hættum er varða netöryggismál
- helstu uppsetningar á netkerfum
Leikniviðmið
- setja saman einkatölvu
- koma fyrir, tengja og setja upp algengan búnað í tölvu
- geta tengt og sett upp hin ýmsu ytri jaðartæki
- setja upp einstaklingsstýrikerfi á tölvu
- nettengja tölvu
Hæfnisviðmið
- setja upp einmenningstölvur frá grunni
- koma fyrir, tengja og setja upp algengan búnað í tölvu
- geta tengt og setja upp hin ýmsu jaðartæki
Nánari upplýsingar á námskrá.is