opinn íþróttagreinaáfangi
Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Nemendur fá trausta þekkingu á tiltekinni íþróttagrein og eru búnir undir þjálfunar- og leiðbeinendastörf hjá íþróttahreyfingunni, í frjálsri félagastarfsemi eða í frístundastarfi.
Gert er ráð fyrir að hægt sé að kenna íþróttagrein sem sérstakur áhugi er á eða hentar vel aðstæðum eða einstökum skólum.
Dæmi um íþróttagreinar:
- Badminton
- Borðtennis
- Fimleikar
- Fjallganga
- Frjálsar íþróttir
- Glíma
- Golf
- Hjólreiðar
- Júdó
- Karate
- Ólympískar lyftingar
- Skautar
- Skíði
- Skvass
- Sund
- Taekwondo
- Tennis
- Þríþraut
Þekkingarviðmið
- hvernig beri að leiðbeina börnum og unglingum um undirstöðuatriðin í viðkomandi grein
- helstu þjálfunaraðferðum í íþróttagreininni
- þeim mun sem er á þjálfun barna og fullorðinna í greininni
Leikniviðmið
- stunda íþróttagreinina og öðlast góðan tæknilegan grunn í greininni
- taka þátt í fjölbreyttum æfingum og leikjum sem tilheyra greininni
Hæfnisviðmið
- skipuleggja þjálfun í íþróttagreininni fyrir börn og unglinga
- nýta sér upplýsingatækni við skipulagningu þjálfunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is