Þjálfun
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05 og hafa lokið a.m.k tveimur íþróttagreinaáföngum. Æskilegt er að nemandi taki áfanga á útskriftarönn
Þessi áfangi er hugsaður sem undirbúningur fyrir starf í íþrótta eða frístundaskóla fyrir börn á aldrinum 4-12 ára eða í íþróttastarfi/frístundastarfi hjá íþróttafélögum fyrir sama aldurshóp. Nemandinn mun setja upp æfingaáætlun í samráði við þjálfara. Hann mun síðan þjálfa með íþróttakennara/þjálfara. Æfingakennslan er metin í lok æfingakennslutímabils. Miðað er við 40-50 klst vinnu nemenda undir stjórn þjálfara yfir eina önn
Þekkingarviðmið
- grunntækni í ýmsum íþróttagreinum
- þjálfunaraðferðum
- skipulagi þjálfunar
Leikniviðmið
- bregðast við óvæntum aðstæðum sem geta komið upp í þjálfun
- eiga samskipti við foreldra/forráðamenn barna
- nálgast börn á jákvæðan og hvetjandi hátt
- stjórna þjálfun í grunnþáttum íþróttagreinar
- halda uppi góðum aga og virkni í æfingatímanum
Hæfnisviðmið
- geta þjálfað og leiðbeint börnum án aðstoðar
- geta útbúið áætlanir (tímaseðil, vikuplan, mánaðarplan, ársplan)
- takast á við vandamál sem geta komið upp
Nánari upplýsingar á námskrá.is