knattspyrna
Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í knattspyrnu. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur í sundur í smáar einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Þekkingarviðmið
- tækniþáttum knattspyrnum
- leikfræði
- leikreglum
- þjálfunaraðferðum
- kennslufræði
- skipulagi á þjálfun
- sögu knattspyrnunnar
Leikniviðmið
- útbúa tímaseðla
- framkvæma grunnæfingar í knattspyrnu
- eiga samskipti við iðkendur og alla þá sem koma að íþróttagreininni
Hæfnisviðmið
- dæma knattspyrnu
- geta þjálfað og leiðbeint börnum í knattspyrnu
- geta útbúið þjálfunaráætlanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is