blak
Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í blaki. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur í sundur í smá einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu blaks hjá börnum.
Þekkingarviðmið
- tækniþáttum blaks
- leikfræði
- leikreglum
- þjálfunaraðferðum
- kennslufræði
- skipulagi á þjálfun
- sögu blaksins
Leikniviðmið
- framkvæma grunnæfingar í blaki
- eiga samskipti við iðkendur og aðra sem koma að greininni
- útbúa tímaseðla
- beita mismunandi þjálfunaraðferðum háð aldri
Hæfnisviðmið
- þjálfa og leiðbeina börnum í blaki
- geta útbúið áætlanir
- dæmt blak
Nánari upplýsingar á námskrá.is