Endurvinnsla
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FATA1SH05
Í áfanganum vinna nemendur textílverkefni upp úr eldri textíl sem má blanda með nýju efni. Vinnan verður að hluta til unnin í samstarfi við góðgerðarfélag. Kennari leggur inn þrjú til fjögur verkefni í hverri viku og nemendur skoða heima og velja úr og koma undirbúnir í tíma. Nemendur fara í vettvangsferðir og kynnast fatasöfnun og að endurvinna sé gott fyrir umhverfið og fjárhag. Nemendur sýna verkefni sín og fara í vettvangsferðir
Þekkingarviðmið
- hugmyndavinnu
- undirbúningi verkefna
- notkun verklýsinga
- einfaldri sníðagerð
- störfum góðgerðafélags
Leikniviðmið
- skrá hugmyndir
- vinna eftir verklýsingu
- skrá verklýsingu
- skilja samband milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og niðurstöðu
- skilja einfalda sníðagerð
- skilja út á hvað endurvinnsla gengur
Hæfnisviðmið
- vinna verkefni frá hugmynd að tilbúnu verki
- til að finna notuðu efni nýtt hlutverk
Nánari upplýsingar á námskrá.is