Hýbýlahönnun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FATA1SH05
Í áfanganum er unnið að textílverkefnum í híbýlum, nemendur vinna allan mögulegan textíl t.d púða, dúka, rúmteppi, gluggatjöld, listmuni og fl. Nemendur þjálfaðir í að virkja sköpunarkraftinn í hugmyndir sínar. Mismunandi stílar skoðaðir og einnig hönnuðir. Farið er yfir rými og notkun þess og nemendur vinna rýmisteikingar og líkön. Vettvangsferðir og verkefni nemenda verða til sýnis
Þekkingarviðmið
- á mismunandi stílum í innanhúshönnun
- á rými og rýmisteikningu
- hugmyndaöflun og uppsetningu
- mismunandi tækni í samsetningu verkefna
- hvaða hráefni má setja saman
- framsetningu og frágang
Leikniviðmið
- skrá hugmyndir
- skilja rými og rýmisteikningu
- skilja ferlið frá hugmynd að fullunnu verki
- hugleiða útlit, notagildi út frá fagur- og formfræðilegum forsendum
- þekkja liti og gildi þerra í umhverfi okkar
- skapa og setja saman eftir mismunandi textílaðferðum
Hæfnisviðmið
- vinna með hugmyndir sínar þannig að hægt sé að útfæra þær út frá lita- og formfræði
- nota efni og form í eigin listsköpun
- skynja liti og samsetningu þeirra í umhverfinu og í listsköpun
- geta gert auðvelda rýmisteikningu og líkön
- kunna ýmsar saumtækniaðferðir við verkefnin sín
Nánari upplýsingar á námskrá.is