Vísindatengdur orðaforði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK2GA05
Í áfanganum er þjálfaður vísindalegur orðaforði með það fyrir augum að undirbúa nemandann fyrir háskólanám þar sem námsefni er á ensku.
Nemendur þjálfa sig í grunnorðaforða í fræðilegri ensku, m.a. með því að lesa texta í fræðum sem þeir hafa áhuga á og hlusta á stutta fyrirlestra til að þjálfa sig í hlustun á fræðilegum orðaforða.
Þekkingarviðmið
- vísindalegum orðaforða í enskum textum og tali
- setningauppbyggingu í fræðilegri ensku
- algengum stofnum sem notaðir eru í fræðilegri ensku
Leikniviðmið
- skilja texta á fræðisviði sem þeir hafa áhuga á
- lesa þokkalega erfiða texta á fræðilegri ensku um ýmis fræðisvið sér til gagns
- hlusta á fyrirlestra á háskólaensku sér til gagns.
Hæfnisviðmið
- skilja texta sem hann þarf að takast á við í háskólanámi eða öðrum verkefnum þar sem fræðileg enska er notuð
- skilja talað mál þegar notuð er fræðileg enska, svo sem í fjölmiðlum eða í námi
Nánari upplýsingar á námskrá.is