Einmenningsstýrikerfi
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Farið er í sögu einkatölvunnar og tíunduð öll þau helstu stýrikerfi sem verið hafa á markaðnum síðustu 20 árin. MS-Dos, Windows 3/95/98/ME/2000/XP/Vista/7 ásamt Open Source stýrikerfum eins og Ubuntu. Helstu notendaforrit skoðuð og uppsetning prófuð. Nemendur fá að reka sig á ýmis tæknileg vandamál sem upp geta komið þegar nýtt stýrikerf er sett upp, m.a. erfðleika með rekla, minni og stærð diska
Þekkingarviðmið
- á sögu einkatölvunnar
- hvernig einmenningsstýrikerfi virka
- hvaða stillingar þarf að framkvæma við uppsetningu á einmenningsstýrikerfi
- viðhald á uppsetningum einmenningsstýrikerfa
- nettengingu einmenningsstýrikerfa
- öryggismál er snerta einmenningsstýrikerfi
Leikniviðmið
- uppsetningu á stýrikerfum fyrir einmenningstölvur
- uppsetningu á forritum fyrir helstu stýrikerfi einmenningstölva
Hæfnisviðmið
- setja upp einmenningstölvur frá grunni
- framkvæma aðgerðir til að auka afköst vélbúnaðar og stýrikerfis
- þjónusta útstöðvar á innra neti
Nánari upplýsingar á námskrá.is