Viðburðastjórnun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FEÞJ2SS03
Í áfanganum er fjallað um eðli viðburða og hlutverki þeirra í samfélaginu. Skoðaðar verða ýmsar gerðir viðburða og mismunandi markmið þeirra. Þá er lögð áhersla á viðburði tengda ferðaþjónustu og sérstaklega á Íslandi. Farið er yfir vinnuferil við skipulagningu viðburða svo sem áætlunargerð, samskipta- og upplýsingastreymi, fjárhagsáætlun, framkvæmd og endurmat. Hlutverk hagsmunaaðila er skoðað.
Þekkingarviðmið
- ferli viðburðastjórnunar frá upphafi til enda
- eðli og hlutverki viðburða í samfélaginu með sérstakri áherslu á íslenska viðburðsstjórnun
- kynningarstarfi viðburða
Leikniviðmið
- setja fram áætlun fyrir viðburð
- stjórna framkvæmd viðburðar
- undirbúa kynningarstarf
- leggja mat á gæði og árangur viðburðar
Hæfnisviðmið
- undirbúa skipulagningu ýmis konar viðburða
- stýra viðburðum og stjórna framkvæmd á skipulegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is