skipulagning, upplýsingagjöf, Þjónusta
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Markmið áfangans er að upplýsa nemendur um hvað ferðaþjónusta er og hvað felst í góðri ferðaþjónustu. Leitast er við að upplýsa nemendur um helstu ferðamannastaði á Íslandi. Markmið áfangans er að opna augu nemandans fyrir því umhverfi sem starfsfólk í ferðaþjónstu starfar við og kynna helstu viðfangsefni þeirra.
Þekkingarviðmið
- því hvernig ferðaþjónusta á Íslandi er skipulögð og hverjir eru helstu hagsmunaaðilar og samtök
- hvað felst í góðri ferðaþjónustu
- hlutdeild starfsmanna í árangri ferðaþjónustu
- helstu ferðamannastöðum á Íslandi og einkennum þeirra
- því sem er sérstakt og eftirsóknarvert á Suðurnesjum
- helstu hugtökum og regluverki ferðaþjónustunnar
Leikniviðmið
- veita haldgóðar upplýsingar sé þess óskað
- beita algengum hugtökum ferðaþjónstu
- leysa verkefni í samstarfi við aðra
- tjá sig um málefni tengd ferðaþjónustu
Hæfnisviðmið
- vera úrræðagóður við ýmiss konar aðstæður í starfi
- eiga skýr og skilmerkileg samskipti við aðila innan ferðaþjónustunnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is