einstaklingur, framtíð, félagsþroski, samfélag, samskipti, sjálfstraust, virðing, ábyrgð
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar.
Megináherslan er lögð á viðfangsefni sem tengjast því að vera manneskja í samfélagi, nemandi í framhaldsskóla og að móta sér framtíðarsýn.Unnin eru margvísleg verkefni um málefni sem brenna á ungu fólki. Verkefnin eru ýmist unnin í hópavinnu eða á einstaklingsgrundvelli. Mikil áhersla lögð á góða hegðun, jákvæð samskipti innan hópsins, vinnusemi og ástundun.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi þess að bera virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra
- leiðum til að efla sjálfsmynd og eiga góð samskipti við aðra
- kostum góðs og heilbrigðs félagslífs
- því sem þarf til að vera virkur og ábyrgur þegn í samfélaginu
- mikilvægi jákvæðrar framtíðarsýnar
- námskröfum skólans og árangursríkum námsaðferðum
- rekstri heimila
Leikniviðmið
- setja sér raunhæf framtíðarmarkmið varðandi nám og starf
- stunda árangursríkt nám í framhaldsskóla
- efla félagsþroska sinn
- eiga góð samskipti við aðra
- hlýða lögum og reglum í samfélaginu
- taka ábyrgð á gerðum sínum
- að tjá sig í stórum eða litlum hópum
- áætlanagerð varðandi heimilisrekstur
Hæfnisviðmið
- efla styrkleika sína og vinna að því að þeir nýtist sem best
- geta skipst á skoðunum, tekið þátt í rökræðum og fylgt málum eftir
- taka ábyrgð á eigin fjármálum
- geta lagað sig að margbreytilegum aðstæðum í lífi og starfi
- vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðislegu samfélagi
Nánari upplýsingar á námskrá.is