Heimasíða, vefumsjónkerfi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: HESI1HV03
Nemendur læra að setja upp vefsíður í CMS vefumsjónarkerfi eins og t.d. Joomla. Nemendur hanna og byggja upp vefsíður með ýmsa notkunareiginleika í huga. Reynt er að láta verkefni líta út fyrir að vera sem raunverulegust. Nemendur vinna stórt lokaverkefni í áfanganum og mega vinna það í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu.
Þekkingarviðmið
- hvernig vefsíður eru uppbyggðar í grunninn
- hvernig stílsíður (CSS) virka
- notkunareiginleikum vefumsjónarkerfa
Leikniviðmið
- setja upp síðu frá grunni sem HTML og aðlaga með CSS
- setja upp Joomla hugbúnaðarpakkann
- setja upp síðu í Joomla vefumsjónarkerfinu
- stilla aðgangstakmarkanir notenda í Joomla vefumsjónarkerfinu
- framkvæma uppfærslur á kerfinu
Hæfnisviðmið
- setja upp vefsíðu í Joomla vefumsjónarkerfinu frá grunni
- geta tekið að sér kerfisstjórn vefsíðna sem eru vistaðar í Joomla vefumsjónarkerfinu
Nánari upplýsingar á námskrá.is