Menntun björgunarmannsins í hinum ýmsu aðstæðum
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Grunnnám fyrir fólk sem vill starfa í björgunarsveit. Námið samanstendur af 9 stökum námskeiðum til að afla almennrar þekkingar og skilning á starfi björgunarmannsins. Markmið áfangans er að gera einstaklinginn hæfari til þess að sinna hinum ýmsu verkefnum sem koma upp í björgunarsveit.
Þekkingarviðmið
- starfi björgunarmannsins, lögum og reglugerðum sem björgunarmaður gengst undir
- þeim tólum og tækjum sem björgunarmaðurinn getur nýtt sér við starf sitt
Leikniviðmið
- meta hættur við sjó og vötn
- nota fjarskiptatæki
- ferðast við mismunandi aðstæður
- nota áttavita og staðsetningartæki
- meta snjóflóðahættur og leitað að félaga í snjóflóði
- beita skipulagðri leit
- veita fyrstu hjálp í óbyggðum
- síga í klettum, klettaklifri og ísklifri.
Hæfnisviðmið
- vita hvaða kröfur eru gerðar til björgunarmanns
- þekkja hættur sem felast í umgengni við snjó í fjöllum,sjó og vötn
- beita grunnatriðum í notkun fjarskiptatækja
- ferðast um svæðið og skipuleggja ferð m.t.t. næringar, ferðahegðunar, notkunar prímusa
- nota áttavita og staðsetningartæki til að taka stefnur og rata á milli staða
- geta tekið þátt í leit af týndu fólki
- geta brugðist rétt við aðstæðum þegar slys ber að höndum á fjöllum
- kunna notkun tækja við vetrarfjallamennsku s.s. mannbrodda, ísöxi, línumeðferð, sig og létt klifur og að kunna mikilvæga hnúta
Nánari upplýsingar á námskrá.is