gönguferðir á fjöll, hreyfing, útivist
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla útivist og lengri gönguferðir. Stefnt er á að nemendur fari í fjórar dagsferðir (3-6 klst) eða eina tveggja daga ferð þar sem gist er eina nótt. Farið verður vel í undirbúning og praktískar leiðbeiningar fyrir lengri gönguferðir í upphafi áfangans.
Þekkingarviðmið
- gildi gönguferða sem heilsurækt
- mikilvægi góðs undirbúnings fyrir lengri og skemmri gönguferðir
- búnaði og pökkun í bakpoka
- veðráttu,landafræði, jarðfræði, náttúrufari og sögu þeirra svæða sem gengið er um
Leikniviðmið
- gera sig kláran í lengri og skemmri gönguferðir hvað varðar útbúnað og nesti
- lesa á göngukort geta þannig bjargað sér á merktum leiðum
- vinna saman í hópi, vera hvetjandi og sýna tillitsemi gagnvart öðrum göngufélögum
Hæfnisviðmið
- meta og ákveða hvaða búnað þarf til ferðar
- glíma við útiveru við mismunandi veðuraðstæður
- nota lengri gönguferðir sér til ánægju og heilsubótar
Nánari upplýsingar á námskrá.is