Hönnun, saumur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FATA1SH05 og FATA2SH05
Í áfanganum vinna nemendur sjálfstætt að eigin hönnun, sniðum og saum. Kennari stendur hjá, aðstoðar og segir til. Nú ættu nemendur að geta unnið sjálfstætt með teikningu og verklýsingar heima.Nýjasta tíska í saumtækni er skoðuð og gerðar tilraunir. Í áfanganum er saumuð yfirhöfn eða kjóll.Vettvangsferðir og sýning á verkefnum nemenda eru hluti af áfanganum.
Þekkingarviðmið
- vinnu við flóknari útfærslu grunnsniða
- flóknari saumtækni
- saum og fóðri
- verklýsingum og flötum teikningum
- tískuteikningu
Leikniviðmið
- vinna við flóknari útfærslur og breytingar á þeim
- sauma og fóðra
- gera eigin vinnulýsingar
- fara eftir vinnulýsingum
Hæfnisviðmið
- vinna sjálfstætt við flóknari snið og sniðútfærslur
- sauma fóðraða yfirhöfn eða kjól
- nota og gera vinnulýsingar
- viðhafa vönduð vinnubrögð
Nánari upplýsingar á námskrá.is