Jarðfræði, dýralíf, gróðurfar, örnefni
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Nemendur fræðist um náttúru Íslands, lífríkið, náttúruöflin, áhrif mannsins. Fræðist um náttúru landshlutanna. Læri að njóta náttúru Íslands og að umgangast náttúruna. Geti kynnt náttúru Íslands fyrir ferðamönnum. Áhersla á verkefnavinnu. Nemendur þjálfist í að miðla þekkingu sinni til ferðamanna. Nemendur tileinki sér virðingu fyrir náttúrunni.
Þekkingarviðmið
- jarðmyndunum á Reykjanesskaganum
- örnefnum á svæðinu
- dýralífi svæðisins
- gróðurfari og jurtategundum svæðisins náttúruvernd
- helstu ferðamannastöðum á svæðinu
- jákvæðum og neikvæðum birtingarmyndum samskipta og tengsla mannsins við umhverfið á svæðinu
Leikniviðmið
- að greina í sundur jarðmyndir
- að nafngreina helstu plöntur á svæðinu
- að nafngreina helstu fugla svæðisins
- taka þátt í umræðum er varða umhverfismál í ferðaþjónustu svæðisins
Hæfnisviðmið
- upplýsa ferðamenn um náttúru svæðisins
- umgangast náttúruna af virðingu
- taka virkan og upplýstan þátt í umræðum um umhverfismál svæðisins
Nánari upplýsingar á námskrá.is