Kynningaráfangi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Hafa lokið grunnskóla
Markmið áfangans er að kynna fyrir nemendum nám í húsasmíði og skyldum byggingagreinum þannig að þeir þekki grunnnám byggingargreina auk þeirra námsleiða sem því tengist. Nemendum er kennt að nota ýmis verkfæri sem notuð eru í trésmíði og hvaða verkfæri skal velja út frá þeim verkum sem verið er að vinna að. Þá er einnig farið í vinnuvernd og hvað ber að varast við notkun tækja og áhalda í trésmíði.
Þekkingarviðmið
- hvernig iðnnám í byggingagreinum er uppbyggt
- notkunarmöguleikum verkfæra og tækja
- mælingum og yfirfærsla á þeim á vinnslustykki
- þeim hættum sem geta skapast við ranga meðhöndlun verkfæra og tækja
Leikniviðmið
- velja viðeigandi verkfæri til einfaldra verka í smíði
- lesa út út teikningu
Hæfnisviðmið
- vinna með ýmis handverkfæri og rafmagnsverkfæri sem tilheyra trésmíði
- smíða einfalda hluti úr tré eftir teikningu
Nánari upplýsingar á námskrá.is