bókmenntir, málnotkun og ritun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Einkunn 5-8 á grunnskólaprófi
Viðfangsefni áfangans er málnotkun í víðum skilningi. Áfanginn byggist upp á lestri og ritun. Mikil áhersla er lögð á að nemendur efli málfærni sína og lesskilning með því að lesa og skrifa mismunandi texta. Þeir fræðast um mismunandi málsnið, auka orðaforða og styrkja málkennd sína með því að nota málið í ræðu og riti.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi lesturs og lesskilnings
- uppbyggingu og framsetningu mismunandi texta
- mikilvægi fjölbreytilegs orðaforða
- mismunandi tal- og málsniðum
Leikniviðmið
- lestri sér til gagns og ánægju
- fjalla um og túlka mismunandi texta
- skrifa fjölbreytilegan texta
- nota mismunandi málsnið til að byggja upp og ganga frá stuttum textum
Hæfnisviðmið
- lesa og túlka texta sér til gagns og ánægju
- koma máli sínu á framfæri á skipulagðan og greinagóðan hátt
- beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is