mannfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: FÉLA3KS05
Framhaldsáfangi í félagsfræði en grunnáfangi í mannfræði þar sem lögð er áhersla á að beita rannsóknaraðferðum og kenningum með það að markmiði að auka þekkingu nemenda á mannfræði sem fræðigrein. Jafnframt verður leitast við að þeir öðlist færni í að beita hugtökum og helstu kenningum greinarinnar. Lögð er áhersla á að nemendur þekki helstu fræðimenn greinarinnar, störf þeirra og skilji tilgang og markmið mannfræðirannsókna í sögulegu samhengi
Þekkingarviðmið
- flóru mannkyns
- frumstæðum samfélögum og menningu þeirra
- gildi mannfræðirannsókna fyrir nútímasamfélagið
- forverum mannkyns
Leikniviðmið
- halda kynningu um tiltekið viðfangsefni
- greina og skýra frá hvernig mannfræðileg þekking getur nýst í nútímasamfélagi
- greina frá hvernig þættir eins og kynhlutverk geta verið skýrð með gleraugum mannfræðinnar
- skilgreina ólík hugtök og nálganir mannfræðinnar
- skýra hvernig hægt er að beita ólíkum kenningum í mannfræði
- skýra hvernig beita á ólíkum aðferðafræðilegum sjónarhornum í mannfræði
Hæfnisviðmið
- skilja helstu aðferðir greinarinnar og nýta sér kenningar hennar í leik og starfi
- beita gagnrýnni hugsun í fræðilegri umræðu sem og í almennri umræðu
- skilgreina og skýra helstu hugtök greinarinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is