nútímaeðlisfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EÐLI3VS05 eða EÐLI3RS05
Framhaldsáfangi í eðlisfræði án verklegs innihalds. Efnisatriði: Takmarkaða afstæðiskenningin, afstæði tíma, lengdar og massa, tengsl massa og orku, hraðasamlagning, Lorentzjöfnur, svarthlutur, geislunarróf, röntgenlampi, Bohr-atómið, de Broglie bylgjulengd, óvissulögmálið, skammtatölur, Schrödingerjafnan, bindiorka, kjarnorka, helmingunartími, geislunarstuðull, geislastyrkur, tímalenging/tímasparnaður við ferðalag nærri ljóshraða og byggilegar fjarplánetur
Þekkingarviðmið
- afstæði tímans
- tvíburaþversögninni og úrlausn hennar
- samlagningu hraða
- afstæði massa og orku
- skömmtun efnis og orku
- svarthlutarhugtakinu
- stöðu rafeindar í vetnisatóminu
- gleypnirófi og geislunarrófi
- rauðvik og blávik vs. litróf
- óvissulögmálinu og þýðingu þess fyrir atómið
- uppbyggingu atómsins út frá skammtatölum
- bindiorku og kjarnorku
- hrörnun geislavirkra kjarna og helmingunartíma
- helstu sjónarmiðum er varða langferðir í geimnum
Leikniviðmið
- leysa eðlisfræðidæmi
- leiða út eðlisfræðilögmál með algebru, deildun og rökleiðslu
- hugsa um viðfangsefni þar sem tíminn er afstæður
- finna lit og geislastyrk
- undirbúa og taka þátt í faglegri og agaðri umræðu um vísindaleg málefni
- tjá sig um vísindaleg málefni fyrir framan áheyrendur
- afla fanga um vísindaleg málefni á erlendu tungumáli í bókum og á netinu
- reikna út virkni geislavirks sýnis sem fall af tíma
Hæfnisviðmið
- tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
- afla gagna sjálfstætt um eðlisfræðilegt viðfangsefni á erlendu tungumáli og skila skriflegri niðurstöðu
- komast að tölulegum niðurstöðum um umhverfi sitt á grundvelli fyrirliggjandi gagna
- rökræða með árangri um vísindaleg málefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is