Bylgjur og ljós
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EÐLI3VS05
Efnisatriði: Kasthreyfing, tvívíður árekstur, einföld sveifluhreyfing, orka í sveiflu, teygjustökk, dempun, herma, pendúll, bylgjugerðir, bylgjujafnan, bylgjufall, útbreiðsla, samliðun, hnútur, bugur, regla Huygens, bylgjubrot, ljósraufar, hljóðstyrkur, skynstyrkur, hljóðafl, bylgja á streng, orgelpípa, Dopplerhrif, lögmál Snells, alspeglun, regnbogi, ljósleiðari, brennipunktur, jafna linsugerðarmannsins, linsujafnan, safnlinsa, dreifilinsa, geislarakning, raunmynd, sýndarmynd. Í áfanganum eru gerðar eðlisfræðitilraunir
Þekkingarviðmið
- samspili x- og y víddar í kasthreyfingu
- samspili x- og y víddar í tvívíðum árekstri
- tengslum útslags, hraða og hröðunar í sveiflu með deildun
- dempun og hermun
- tegundum bylgna
- hnút og bugi
- grunnatriðum bylgjuútbreiðslu og samliðunar og lögmáli Huygens
- brotlögmálinu
- samliðun ljóss í raufagleri
- hljóðstyrk og skynstyrk
- hegðun bylgju á streng, í opinni og lokaðri pípu
- skilyrði alspeglunar
- ferð geisla um safnlinsu og dreifilinsu
- skilyrði raunmyndar og sýndarmyndar
Leikniviðmið
- finna helstu stærðir hlutar í kasthreyfingu
- finna hraða og stefnu tveggja hluta fyrir og eftir árekstur í tvívíðu rúmi
- finna helstu stærðir hlutar í einfaldri sveifluhreyfingu m.a. með orkuvarðveislu
- setja fram og lesa úr grafi bylgjufalls með fasa
- teikna útbreiðslu bylgju með fyrirstöðum
- finna hnútalínur og buglínur í samliðun
- reikna útbreiðslustefnu bylgju sem brotnar
- finna ljóshámörk raufaglers
- reikna milli hljóðstyrks og skynstyrks
- finna tíðni og bylgjulengd standandi bylgju
- finna krítíska horn alspeglunar
- teikna geislarakningu í linsu
- tilgreina hvort mynd er raunmynd eða sýndarmynd
- leiða út eðlisfræðilögmál með algebru, deildun, heildun og rökleiðslu
Hæfnisviðmið
- komast að tölulegum niðurstöðum um umhverfi sitt á grundvelli fyrirliggjandi gagna
- framkvæma verklegar æfingar, vinna úr þeim og útskýra niðurstöður þeirra
- að geta aflað gagna sjálfstætt um eðlisfræðilegt viðfangsefni á erlendu tungumáli og skilað skriflegri niðurstöðu
- tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
Nánari upplýsingar á námskrá.is