Skilningur og orðaforði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Einkunn 5-8 í ensku uppúr grunnskóla eða að nemandi hafi lokið undirbúningsáfanga
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist góða færni í ensku. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér almennan orðaforða og í að nota málið og tjá sig á skýran og skipulegan hátt. Áhersla er lögð á lestur almennra og sérhæfðra texta með það fyrir augum að byggja upp virkan orðaforða og góðan skilning. Viðfangsefni eru: textalestur, orðaforði, ritun og málfræði
Þekkingarviðmið
- orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
- notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
- lesskilningi sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
Leikniviðmið
- skilja almennt mál
- lesa almenna texta sér til gagns
- beita málfari við hæfi í samskiptum
- tjá sig skýrt og skipulega
- skrifa ýmiskonar ritanir
Hæfnisviðmið
- skilja almennt talað mál
- tileinka og nýta sér efni almennra ritaðra texta
- lesa almenna og sérhæfða texta og geta tjáð sig skriflega um efni þeirra
- tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt
- skrifa margskonar texta eftir því sem hæfa tilefninu
Nánari upplýsingar á námskrá.is