hlaup, liðleiki, lyftingar, Þrek
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Áfanginn er verklegur og fer fram í líkamsræktarsal. Auk þess er í boði að notfæra sér útiaðstöðu s.s. fara út að hlaupa eða ganga. Nemendur vinna eftir sinni eigin áætlun eða áætlun kennara. Meginviðfangsefni áfangans er fjölbreytt líkamsrækt og alhliða líkamsþjálfun í formi lyftinga, liðleikaæfinga, þol- og þrekæfinga
Þekkingarviðmið
- mikilvægi hreyfingar
- helstu reglum og öryggisatriðum varðandi líkamlegt álag og meiðslahættu
- líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu
- leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
- æfingum sem bæta líkamsbeitingu og vinnutækni
- gildi samvinnu, umburðarlyndis og virðingar
- forvarnargildi líkamsræktar
Leikniviðmið
- taka þátt í alhliða líkams-og heilsurækt
- beita styrkjandi og mótandi æfingum fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans
- efla líkamsbeitingu og vinnutækni
- hreyfa sig sér til heilsubótar og ánægju
- nýta sér tæknina til að hreyfa sig meira
- taka tillit til annarra og hvetja þá
Hæfnisviðmið
- stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
- sýna sjálfstæð vinnubrögð við eigin þjálfun í líkamsrækt
- vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
- styrkja jákvæða sjálfsmynd með hreyfingu
- gera hreyfingu að lífsstíl
Nánari upplýsingar á námskrá.is