Sund
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Áfanginn er verklegur. Meginviðfangsefni áfangans er fjölbreytt líkamsrækt og alhliða líkamsþjálfun tengd sundi þar sem áhersla er lögð á þolæfingar. Áfanginn inniheldur mismunandi kynningarþætti, s.s. bringusund, baksund, skriðsund og aðrar sundgreinar ef nemandi óskar þess. Unnið er með atriði eins og samvinnu, tillitsemi og háttvísi
Þekkingarviðmið
- mikilvægi hreyfingar
- sundíþróttinni
- líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu
- leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
- gildi samvinnu, umburðarlyndis og virðingar
- forvarnargildi líkamsræktar
Leikniviðmið
- synda
- hreyfa sig sér til heilsubótar og ánægju
- nýta sér tæknina til að hreyfa sig meira
- taka tillit til annarra og hvetja þá
Hæfnisviðmið
- stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
- sýna öðrum virðingu við leik, keppni, nám og störf
- vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
- styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í greininni
- gera hreyfingu að lífsstíl
Nánari upplýsingar á námskrá.is