ÍÞRÓ1BA01(SB) - Badminton
badminton
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Áfanginn er verklegur. Badminton er leikið sér til ánægju og heilsuræktar. Kynntar eru helstu reglur íþróttarinnar. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju
Þekkingarviðmið
- helstu leikreglum og grunnatriðum greinarinnar
- mikilvægi hreyfingar
- líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu
- leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
- gildi samvinnu, umburðarlyndis og virðingar í leik, keppni og starfi
- forvarnargildi líkamsræktar
- mikilvægi upphitunar
Leikniviðmið
- beita grunntækni í greininni
- leika badminton sér til heilsubótar og ánægju
- vinna með öðrum að lausnum verkefna
- taka tillit til annarra og hvetja þá
Hæfnisviðmið
- stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
- sýna öðrum virðingu við leik, keppni, nám og störf
- vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
- styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í greininni
- gera hreyfingu að lífsstíl
Nánari upplýsingar á námskrá.is