Saumatækni og sniðhlutar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum fá nemendur þjálfun í notkun tilbúinna sniða og að breyta þeim eftir eigin stíl og vexti. Nemendur sauma einfaldar flíkur og þjálfa sig í saumtækni. Gerðar eru einfaldar prufur. Flöt teikning af flík ásamt vinnulýsingu skal unnin meðfram saumaskapnum. Vinnumappa tekin saman með öllum verkefnum áfangans. Vettvangsferðir eru farnar og sýning verður í annarlok á verkefnum nemenda
Þekkingarviðmið
- orðaforða greinarinnar til að geta notað skýringarmyndir og vinnulýsingar
- hvernig líkamsmál eru tekin og gerður samanburður við stærðartöflur
- uppbyggingu sniða og heitum og útliti ólíkra sniða
- hvernig sniðhlutar eru lagðir á efni
- helstu notkun á saumavélum og öðrum tækjum
- grunnatriðum í saumtækni
Leikniviðmið
- taka líkamsmál og skilja stærðartöflur
- nota orðaforða greinarinnar við notkun vinnulýsinga
- geta raðað sniðhlutum á efni
- geta teiknað saumför, falda, og aðrar merkingar áður en sniðið er og sauma einfaldar flíkur og prufur
- nota saumavélar og fylgihluti
- temja sér vönduð vinnubrögð
Hæfnisviðmið
- lesa úr stærðartöflum
- laga snið að stærðum
- meta og nota viðeigandi stillingar á saumavélum
- sauma einfaldar flíkur
Nánari upplýsingar á námskrá.is