algebra, föll, gröf
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3DF05
Í áfanganum er unnið með föll, eiginleika þeirra, andhverfu þeirra og hvort þau eru eintæk, átæk eða gagntæk. Hornaföll eru tekin sérstaklega og unnið dýpra með þau en áður. Unnið með umritun hornafallareglna og sannanir þeirra helstu. Unnið með flókin algebrubrot og jöfnur
Þekkingarviðmið
- föllum
- diffrun
- algebrubrotum
Leikniviðmið
- vinna með föll
- diffra föll og nota diffrun í hagnýtum tilgangi
- einfalda flóknar algebrustæður
- leysa flóknar jöfnur þar sem kunnátta í algebru er nauðsynleg
- umrita helstu hornafallareglur og rökstutt þær
Hæfnisviðmið
- orða kunnáttu sýna og útskýra niðurstöður útreikninga sinna í samræðum um efnið við kennara og bekkjarfélaga
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
- greina frá hvar og hvernig námsþættir eru nýttir í raunverulegum aðstæðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is