teikning
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum læra nemendur nokkur grunnatriði myndlistar. Námið er í fimm hlutum: Formfræði, uppstilling, fjarvídd, litafræði og málun. Nemendur halda skissubók
Þekkingarviðmið
- grunnþáttum í myndlist
- notkun teikniáhalda og virkni þeirra
- litasvið blýantsins og aðferðum til skygginga
- framköllun þrívíddar með skyggingu
- grunnþáttum formfræði og teikningar
- blöndun grunnlita í litatóna og hugtökum þar að lútandi
- myndbyggingu
- eins og tveggja punkta fjarvídd
- málun
Leikniviðmið
- gera skissur og teikningar
- framkalla þrívídd með skyggingu
- blanda liti í mismunandi tónum
- vinna að uppbyggingu myndflatar og nýta sér markvisst hugtök á borð við: jafnvægi, spennu, þunga, hrynjandi, samhverfu, mynstur og andstæður
- vinna myndverk í þrívídd og fjarvídd
Hæfnisviðmið
- nýta reglur og form í eigin listsköpun
- vinna á persónulegan hátt með eigin hugmyndir og útfært í myndverk með tilliti til lita-, formfræði og myndbyggingar
- byggja upp myndverk
Nánari upplýsingar á námskrá.is