Handmennt og saumur
Einingafjöldi: 10
Þrep: 1
Í áfanganum læra nemendur grunnvinnsluaðferðir í nokkrum undirstöðugreinum handmenntar. Nemendur læra að nota áhöld og tæki í greininni. Nemendur vinna prufur meðan þeir eru að ná grunnþáttunum í aðferðum og síðan nýta þeir sér þekkingu sína í eigin útfærslur og hönnun. Nemendur þurfa að temja sér vönduð og sjálfstæð vinnubrögð. Vettvangsferðir og sýning á verkefnum nemenda. Dæmi um verkefni: Prjón, hekl, útsaumur, leðurvinna, bútasaumur og fl.
Þekkingarviðmið
- grunnatriðum í prjóni, hekli, útsaumi og ýmsum textílaðferðum
- ganga frá verkefnum
- möguleikum sem eru fyrir hendi í ýmissi textílvinnu
Leikniviðmið
- nota grunnaðferðir í ýmsum textíl
- nýta sér mismunandi hráefni í vinnslu ýmissa hluta
- búa til vinnulýsingu
Hæfnisviðmið
- leita nýrra hugmynda til að iðka handmenntir
- geta yfirfært hugmynd sína yfir í unninn hlut
- útfæra verkefnin eftir vinnulýsingar
- vanda frágang og vinnubrögð
Nánari upplýsingar á námskrá.is