Saumur, hönnun, snið
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum vinna nemendur með grunnsnið og læra einfaldar sniðabreytingar. Nemendur laga snið að vexti, sauma einfaldar flíkur og máta. Kennd eru grunnformin á líkamanum og einnig flatar teikningar. Nemendur vinna nokkrar prufur í saumtækni. Vettvangsferðir eru farnar og sýning verður á verkefnum nemenda
Þekkingarviðmið
- uppbyggingu grunnsniða
- heiti sniðhluta, þráðrétta og mikilvægi merkinga
- notkun grunnsniða
- saumur á einföldum flíkum
- verklýsingar og flatar teikningar
- saumtækni
- að ákveða efnismagn
- vönduðum vinnubrögðum
Leikniviðmið
- vinna ýmsar sniðútfærslur út frá grunnsniðum
- nota heiti sniðhluta og merkingar
- útfæra og sauma flíkur eftir málum
- fara eftir verklýsingum
- geta sett hugmyndir sínar á blað
- leggja snið á efni þannig að þráðlína sé rétt og efnið vel nýtt
Hæfnisviðmið
- vinna sjálfstætt einfaldar sniðútfærslur út frá grunnsniðum
- sauma einfaldar flíkur eftir grunnsniðum og eigin útfærslum
- vinna eftir verklýsingum
- ákveða efnismagn
- temja sér vönduð vinnubrögð
Nánari upplýsingar á námskrá.is