Netstýrikerfi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: USFS1ES05
Farið í grunnatriði er varða netkerfi og almenna kerfisstjórnun. Tíunduð eru öll helstu hlutverk sem kerfisstjóri hefur á höndum í daglegum rekstri fyrirtækja. Kynning á netstýrikerfum frá Microsoft. Uppsetning á netstýrikerfum frá Microsoft hlutar þeirra skoðaðir eins og Active Directory, DNS o.s.frv. Hlutverk netþjóna skoðuð og nemendur fá að reka sig á ýmis tæknileg vandamál sem upp geta komið þegar ný stýrikerfi eru sett upp.
Þekkingarviðmið
- hvernig netstýrikerfi virka
- hvaða stillingar þarf að framkvæma við uppsetningu á netstýrikerfi
- viðhald á netstýrikerfum
- nettengingum og stillingum þeirra er snúa að netstýrikerfum
- öryggismálum er snerta netstýrikerfi
Leikniviðmið
- uppsetningu á stýrikerfum fyrir netþjóna
- uppsetningu á forritum fyrir netstýrikerfi
- stillingar á forritum fyrir netstýrikerfi
Hæfnisviðmið
- setja upp og reka netþjóna
- framkvæma þær stillingar og aðgerðir er stuðla að hámarks afköstum vél- og hugbúnaðar
- þjónusta netþjóna sem tengdir eru á innra neti
Nánari upplýsingar á námskrá.is