næringarfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er fjallað um næringarefnin, hlutverk þeirra,
skortseinkenni og ráðlagða dagskammta. Ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um
mataræði og næringarefni eru kynntar og nemendum kennt að setja saman
matseðla og dagsfæði samkvæmt þeim. Nemendur læra að notfæra sér
næringarefnatöflur/næringarfræðiforrit og reikna út næringargildi matseðla.
Fjallað er um flokkun fæðutegunda og næringargildi þeirra, áhrif matreiðslu á næringargildi og uppbyggingu máltíða. Fjallað er um næringarþarfir
mismunandi hópa. Gerð er grein fyrir gildandi lögum og reglugerðum um notkun aukefna í matvælum og vörumerkingum matvæla.
Þekkingarviðmið
- helstu næringarefnum í matnum og vita hvar þau er að finna.
- ráðleggingum Lýheilsustofnunnar um næringu
- lög og reglum um aukaefni og vörumerkingum matvæla
- innihaldslýsingum á umbúðum utan um neysluvörur
- næringarþörfum sérstakra hópa
- næringarfræðiforritum/næringartöflum til að reikna út næringargildi einstakra fæðutegunda og fæðisins í heild
Leikniviðmið
- lesa næringargildi einstaka matarteguna
- lesa og nýta sér upplýsingar á matarumbúðum
- nota næringarforrit
- reikna út næringargildi matvæla eftir næringartöflum
Hæfnisviðmið
- velja sér fæðu samkvæmt ráðleggingum Lýheilsustofnunnar
- reikna út næringargildi máltíða og dagsfæðis
- setja saman hollan dagsmatseðil
- lesa innihaldslýsingar á umbúðum utan um neysluvörur
- vera fær um að nota næringarfræðiforrit til að reikna út næringargildi einstakra máltíða
Nánari upplýsingar á námskrá.is