hagnýt stærðfræði daglegs lífs
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum tileinka nemendur sér helstu undirstöðuþætti almennrar stærðfræði og öðlast um leið sjálfstraust og hugrekki til að glíma við margvísleg reikningsdæmi. Helstu þættir hagnýtrar stærðfræði eru í brennidepli, s.s. samlagning, frádráttur, margföldun og deiling, brot, verðútreikningar, prósentur o.fl.
Þekkingarviðmið
- Einföldum aðgerðum í stærðfræði s.s. samlagningu, margföldun, deilingu, hlutföllum og einföldum prósentureikningi
- Framsetningu upplýsinga á myndrænan og lýsandi hátt
Leikniviðmið
- Skrá lausnir sínar snyrtilega og skipulega
- Nota vasareikni
- Reikna í huganum
- Lesa upplýsingar út úr einföldum myndum og gröfum
Hæfnisviðmið
- Nýta stærðfræði í daglegu lífi
- Geta metið hvaða aðgerðir í stærðfræði henta við ólík úrlausnarefni í daglegu lífi
- Geti nýtt kunnáttu sína til að skilja og meta upplýsingar sem settar eru fram á myndrænan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is