ÍSLE1LR05(SS) - Íslenska, grunnstoðir
lestur og ritun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er lögð megináhersla á lestur og ritun.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi lestrar
- mismunandi aðferðum við lestur
- mikilvægi þess að geta áttað sig á aðalatriðum í texta
- mikilvægi réttritunar
- helstu hjálpargögnum við ritun
Leikniviðmið
- nota mismunandi lestrartækni við lestur mismunandi texta
- taka út aðalatriði úr texta og átta sig á meginefni hans
- koma frá sér texta á rituðu máli
- nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
Hæfnisviðmið
- ákvarða hvaða lestraraðferðum skuli beitt við hinar ýmsu textagerðir
- dýpka lesskilning sinn
- styrkja eigin mál- og ritfærni
- túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
- endursegja lengri sögu á sannfærandi hátt og lýsa flóknum aðstæðum með skýrum og einföldum hætti án málalenginga
Nánari upplýsingar á námskrá.is