Samtímatónskáld
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um að sígilda tónlist og ýmis tónskáld sem hafa haft áhrif á samtímasöguna eða frá um 1930 til dagsins í dag. Einnig verður hlustað á ýmis tóndæmi sem tengjast efninu.
Þekkingarviðmið
- Hvað felst í hugtakinu sígild tónlist
- Fjölbreytileika hljóðfæra í sígildri tónlist
- Uppbyggingu mismunandi hljómsveita
- Nokkrum sígildum tónskáldum í samtímanum
Leikniviðmið
- Að þekkja ýmis hljóðfæri
- Að nefna nokkur sígild samtímatónskáld
- Að nefna nokkur sígild samtímaverk og lög
- Að tengja tónverk og/eða tónlist við höfund
Hæfnisviðmið
- Greina áhugasvið sín varðandi tónlist
- Geta tjáð öðrum áhugasvið sín varðandi tónlist
- Geta tekið þátt í umræðum um samtímatónlist
- Geta hlustað fordómalaust á ýmis tóndæmi
- Geta myndað sér skoðun á ýmsum tóndæmum og tjáð sig um hana
Nánari upplýsingar á námskrá.is