Hönnun
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í þessum áfanga fá nemendur tækifæri til að kynnast ferlinu á hönnun og framleiðslu vöru til heimilisskreytinga. Áhersla er lögð á að nemendur fái að taka þátt í og skapa ferlið sjálfir allt frá hugmyndavinnu, skipulagi, sköpun og loks framleiðslu. Markmiðið er að nemendur fái að kynnast fjölbreytni í listsköpun með áherslu á það sem er vinsælt í samtímanum. Nemendur fá kynningu á því hvernig finna megi vinsælar síður á netinu til að sjá hvað er vinsælast í heimilisskreytingum hverju sinni.
Þekkingarviðmið
- Mikilvægi skipulagðra vinnubragða í framleiðslu
- Þeim möguleikum sem sköpun hefur upp á að bjóða
Leikniviðmið
- Vinna eftir skipulagi
- Finna hugmyndir sem hann vill gera að sínum og koma í framleiðslu
Hæfnisviðmið
- Fegra umhverfi sitt og annarra
- Finna sér verkefni sér til dægrastyttingar
- Hafa trú á eigin færni og sjálfstraust til að takast á við ný verkefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is