Verndaðir vinnustaðir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í þessum áfanga fá nemendur tækifæri til að kynna sér verndaða vinnustaði. Nemendur fá tækifæri til að fara í starfsnám sem verður skipulagt í samráði við vinnuveitendur og hefur kennari eða annar starfsmaður skólans umsjón með starfsnáminu. Nemendur vinna eftir vinnulistum sem taka mið af aðstæðum hverju sinni.
Þekkingarviðmið
- Vernduðum vinnustöðum
- Undirstöðuþáttum á vernduðum vinnustöðum
- Þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli á vinnustað
- Hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
Leikniviðmið
- Mæta til vinnu á réttum tíma
- Vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
- Fylgja fyrirmælum
- Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
- Fylgja samskiptareglum á vinnustað
Hæfnisviðmið
- Taka þátt í atvinnulífinu
- Biðja um aðstoð ef þess þarf
- Tilheyra starfsmannahópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is