Íþróttir og útivist
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum er verið að kynna nemendur fyrir útivist, fjölbreyttum gönguleiðum, hreyfingu og útbúnaði sem mikilvægur er í stuttar göngur. Áfanginn er verklegur og fer fram á skólatíma.
Þekkingarviðmið
- Mikilvæg góðrar heilsu fyrir framtíðina
- Hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
- Mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
Leikniviðmið
- Auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
- Nýta snjalltækni til að kortleggja útivistina
Hæfnisviðmið
- Nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
- Viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu
Nánari upplýsingar á námskrá.is