hreyfing og lýðheilsa - bóklegt
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áfanginn er bóklegur og fer fram í formi umræðna og tímaverkefna. Unnið verður með forvarnir sem tengjast hreyfingu, næringu, umhverfi, áfengi, reykingum, fíkniefnum, hreinlæti, tannheilsu, kynsjúkdómum og getnaðarvörnum. Lögð verður áhersla á að auka heilsulæsi, en það eru hæfileikar sem ráða því hversu vel nemanda gengur að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu.
Þekkingarviðmið
- Hugtökunum um forvarnir og heilbrigði
- Mikilvægi góðrar heilsu
- Hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa langvinna sjúkdóma
- Helstu flokkum næringarefna
- Mikilvægi þess að velja hollt mataræði framyfir óhollt
- Skaðsemi reykinga, áfengis og vímuefna á líkamlega, andlega og félagslega heilsu
- Hvernig umhverfið og nærsamfélagið hefur áhrif á lífsgæði fólks
Leikniviðmið
- Lesa innihaldslýsingar á matarumbúðum
- Nýta sér heimasíður, bæklinga og rannsóknir til þess að viðhalda og/eða bæta eigin heilsu
Hæfnisviðmið
- Nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
Nánari upplýsingar á námskrá.is