Íslenska lýðveldið
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað er verður um sögu íslenska lýðveldisins frá stofnun þess fram að deginum í dag.
Þekkingarviðmið
- Að Ísland er sjálfstætt lýðveldi
- Sögu Íslands
Leikniviðmið
- Að segja hvenær lýðveldið var stofnað
- Að þekkja fánalitina og fyrir hvað litirnir standa
- Að þekkja skjaldarmerkið
- Að geta nefnt þjóðhátíðardag og af hverju sá dagur var valinn
- Að vita hverjir hafa verið forsetar
- Að vita hver er núverandi forseti og hvar hann býr
- Að leita sér upplýsinga um Alþingi, hvar það er og hvað það er
- Að leita sér upplýsinga um þingmenn, stjórn, stjórnarandstöðu og ráðherra
Hæfnisviðmið
- Taka þátt í umræðum um lýðveldið Ísland
- Beita þekkingu sinni í daglegu lífi í umræðum um lýðveldið Ísland
Nánari upplýsingar á námskrá.is