náms-og starfsfræðsla
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um fjölbreytta gerð vinnustaða og helstu reglur sem gilda á vinnustöðum. Farið verður í vettvangsferðir og tækifæri til áframhaldandi náms verður skoðað.
Þekkingarviðmið
- Að til eru fjölbreyttir vinnustaðir
- Að ákveðnar reglur gilda á vinnustöðum
- Námstilboðum
Leikniviðmið
- Að lesa á klukku
- Að fylgja fyrirmælum
- Að þekkja einfaldar reglur varðandi vinnu, vinnustaði og nám til framtíðar
- Að vinna verkefni í skólanum og fara eftir fyrirmælum
- Viðeigandi framkomu
- Að fylgja almennum hreinlætiskröfum
Hæfnisviðmið
- Meta það sjálfur eða í samráði við kennara hvaða atvinna hentar honum
- Meta það sjálfur eða í samráði við kennara hvaða nám að loknum framhaldsskóla hentar honum
- Meta það sjálfur eða í samráði við kennara hvað ferðamöguleikar henta til að komast á milli staða
- Sýna í framvæmd að hann hafi vald á ýmsum reglum s.s. stundvísi og reglum sem varða heinlæti og framkomu
Nánari upplýsingar á námskrá.is