Líkaminn og tilfinningar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um tilfinningar og almenna líðan. Einnig heiti ýmissa líkamshluta og hvaða hlutverki þeir gegna. Rætt er um að líkami sé einkaeign sérhvers einstaklings.
Þekkingarviðmið
- Líkamanum og starfsemi hans
- Mismunandi tilfinningum
Leikniviðmið
- Að skilja eigin tilfinningar
- Að hemja tilfinningar ef þær verða yfirdrifnar
- Að virða tilfinningar annarra
- Að þekkja líkama sinn, starfsemi og vita hvaða hlutverki helstu líkamshlutar gegna
- Að vera meðvitaður umað hann ráði yfir líkama sínum
- Að þekkja einkasvæði
- Að kunna að setja mörk
Hæfnisviðmið
- Geta stjórnað tilfinningum sínum á sem bestan hátt
- Virða tilfinningar annarra
- Tileinka sér lífsstíl sem stuðlar að góðri heilsu og líkamlegum framförum
Nánari upplýsingar á námskrá.is