Framkoma og hreinlæti
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um viðeigandi framkomu og snyrtimennsku til að nemanda líði sem best í daglegu lífi.
Þekkingarviðmið
- Að viðeigandi framkoma og snyrtimennska leiðir til fleiri tækifæra til dæmis varðandi vinsældir í hópi
- Að viðeigandi framkoma og snyrtimennska veitir meiri líkur á tækifærum á sviði tómstunda, náms og vinnu
- Að hreinlæti er nauðsynlegt
- Að skortur á hreinlæti getur valdið sjúkdómum, vondri lykt eða öðrum óþægilegum kvillum
- Að viðeigandi klæðnaður er mikilvægur
Leikniviðmið
- Að kynna sig
- Að heilsa á viðeigandi hátt
- Að svara þegar á hann er yrt
- Að bíða eftir að röðin komi að honum
- Að hagræða fötum og velja viðeigandi klæðnað
- Að nota viðeigandi snyrtivörur
- Að nota tannbursta og tannkrem
- Að þvo hendur og líkama
Hæfnisviðmið
- Temja sér viðeigandi framkomu
- Sinna eigin hreinlæti
- Vita hvað klæðnaður hentar hverju sinni
Nánari upplýsingar á námskrá.is